Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Loka valmynd

Guð minn almáttugur. Og hans nánustu vinir og velgjörðamenn.


Prestar undanþegnir lögum Og boðorðunum líka


„Já, blessaður vertu. Við höfum oft og mörgum sinnum heyrt af því að prestar svíki undan skatti, enda eru þeir bara mannlegir og þannig, þó þeir séu auðvitað betur launaðir en gengur og gerist, enda guðsmenn og svoleiðis“, segir séra Kristján Björnsson, formaður Prestafélags íslensku Þjófkirkjunnar. 

Hvað er gert í slíkum tilfellum?

„Gert? Ekkert. Ekki förum við að refsa guðsmönnum sem ganga á guðs vegum, og senda þá í fangelsi eða eitthvað þvíumlíkt. Nema auðvitað fangelsispresta. En ekki í refsiskyni sem sé, heldur til umbunar, skilurðu?“

En þurfa prestar ekki að fara að landslögum eins og aðrir?

„Tja, þegar stofnun er fjársvelt svona hrikalega, og þú veist, rosa mikið og þannig. Þá hafa sumir prestar jafnvel bara rétt á aðra milljón í mánaðarlaun eða eitthvað, þegar allt er talið saman. Og þá er auðvitað skiljanlegt og eiginlega bæði æskilegt og sanngjarnt, að þeir taki svona smávægilega brúðkaups- og fermingarpeninga eignanámi og sér til eignar. Ég efast ekki um að slíkt sé guði algjörlega og að flestu leyti þóknanlegt. Af því að við erum jú sérstakir talsmenn og málsvarar hans sko. Eins og sést bersýnilega á sérstökum klæðaburði okkar, oblátuáti, og valdsmannslegri framgöngu“, segir Kristján að lokum, og skilur blaðamann eftir orðlausan.

Vantrú
Vísir







Eldhúsdagsdansinn






Reyndu að hlæja að vandamálum þínum.

Það gera það allir aðrir.
Ég hélt alltaf að ég þjáðist af óákveðni, en ég er ekki svo viss lengur.


Minn stærsti galli er hógværðin!
Fara efst á síðu