Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Loka valmynd

Davíð þykir nokkuð forsetalegur eftir að hann greiddi sér.


Með nákvæmlega hárrétt magn af réttri reynslu Allir hinir með of litla og vitlausa reynslu


Davíð Oddsson, fyrrverandi allt, segir að hann hafi neyðst til að gefa kost á sér í forsetakosningunum, vegna þess hve reynslulitlir aðrir frambjóðendur eru. Fyrir utan herra Óákveðinn Ragnar Grímsson auðvitað, en Davíð segir að hann hafi allt of mikla reynslu.

Herra Óákveðinn sagðist aftur vera orðinn sammála því, eftir að hafa tímabundið verið ósammála sjálfur sér og óákveðinn um afstöðu sína. Hann bætti því við að hann myndi frekar vilja hætta við að hætta við að hætta við að hætta við að hætta við að gefa kost á sér, en að skíttapa í kosningum. Talið er líklegt að hann muni enn og aftur skipta um skoðun síðar í vikunni og endurboða framboð sitt. Eða að minnsta kosti segjast vera orðinn óákveðinn enn á ný.

Bjarni Ben gladdist mjög við framboð Davíðs og sagðist ætla að kjósa hann oft og mörgum sinnum. Hann segir þó óráðlegt að aðrir en sjálfstæðismenn líti á kosningarnar sem flokkspólitískar.

Davíð benti þeim sem efast um ágæti hans á að hafa samband við Hannes Hólmstein Gissurarson. Hann geti ábyrgst að Davíð verði hinn fullkomni forseti, og rúmlega það.






Herrann í Hádegismóum...






Fara efst á síðu