Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Loka valmynd

Þórunn þrefar þrákelknislega


Fávís forseti fer fram úr sér Uppljóstrar ferlegum fordómum


Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, setti fram forneskjulegar hugmyndir í fordómafyllsta hlaðvarpi samtímans. Þar sagði hún að íslenskir karlar væru stærsta vandamál heimsins.

Þessi skoðun hefur verið í tísku hjá öfgavinstrinu í áratugi og að sögn Þórunnar hefur sú tíska elst svo vel að rétt sé að kalla hana klassík.

Þórunn þvaðraði um feðraveldi og ferðafrelsi og sagði að karlar væru andstyggileg uppfinning. Eingöngu íslenskir karlar þó, því erlendir karlar væru æði.

Hún segir alla rugla öllu saman. Sjálf rugli hún engu saman, enda sé hún bæði kvenkyns og lengst til vinstri og það tvennt dugi langt til að sanna fullkomleika hennar.

Þórunn segir það engu breyta að konur gegni nú öllum valdastöðum á Íslandi. Sigri verði ekki fagnað fyrr en íslenskum körlum verði endanlega útrýmt.

DV.is






„Löggulíf“






Fara efst á síðu