Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Loka valmynd

Hér má sjá dæmigert hóphugsunarferli


Heimsmeistaramótið í hóphugsun fer vel af stað Dyggðamerkjasendingar sem aldrei fyrr


Snorri Másson ræsti í vikunni heimsmeistaramót Íslands í hóphugsun.

Íslendingar Öll óðu strax af stað og greinilega mikill keppnishugur í landsmönnum fólki af báðum öllum kynjum.


Keppnin fór þó snemma að snúast um það hversu hræðileg manneskja Snorri hljóti að vera. Að margra mörgs sögn líkist hann bæði Trump og Pútín í útliti sem og að eðlisfari, en er þó heldur verri en þeir báðir til samans.

Hann er sjöfalt verri en Hitler sem var þó trúlega afi hans, enda eru þeir nauðalíkirlíkt. Þegar þriðja heimsstyrjöldin hefst eftir helgi þá verður það áreiðanlega Snorra að kenna.

Enginn Ekkert hefur þó gagnrýnt eitthvað sérstakt við ræsingu Snorra, enda skiptir engu máli hvað hann sagði. Slíkt myndi að auki krefjast sjálfstæðrar hugsunar sem er einmitt meginsynd Snorra og hefur hann af þeim sökum verið dæmdur úr leik.

Keppni lýkur um helgina þegar næsta móðursýkis- og hneykslismót hefst.






Eldhúsdagsdansinn






Fara efst á síðu