Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Loka valmynd

Hér má sjá Guðmund Inga nærast á hljóðnema.


Líf mitt er eins og skáldsaga Skrifuð af hálfvita


Guðmundur Ingi Kristjánsson er nýr og glæsilegur menntamálaráðherra eftir að Ásthildur Lóa var tekin af lífi í beinni útsendingu á RÚV fyrir litlar ef einhverjar sakir.

Guðmundur Ingi er illa læs og enn verr talandi, en það kemur þó ekki að sök að hans sögn.

„Þó ég er rosa vitlaus vitleysingur og þannig, þá geri ég ekkert alla vitleysu vitlaust eða þúst svona vitleysingalega eða þannig,“ útskýrir hann.

Guðmundur vill að vonum auka framgang vitlausra vitleysinga í samfélaginu og hefur því ákveðið að setja lög sem skylda framhaldsskóla til þess að taka inn sem flesta vitlausa vitleysinga. Þá væntanlega á kostnað nemenda sem skara fram úr.

„Ég ekki skilja vel af hverju við eigum að vera góð við gáfaða fólkið en vond við vitlausu vitleysingana, Æ djöst önderstúdd it not verrí skiljú?“ segir Guðmundur fjarrænn á svip.

Guðmundur Ingi bindur vonir við að aukin áhersla á fjölbreytileika greindar í stjórnunarstöðum og þá sérstaklega upphafning skorts á henni muni leiða til betri tíma í íslensku samfélagi.

„Sjáðu mig bara, rosa vitlaus vitleysingur og bara orðinn herra ráðherra og allt! Verrí gúdd og næs jess?!“

RÚV
VB
MBL






xB 2014






Fara efst á síðu