Fréttir
Myndir
Gullkorn Gyssurar
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Fréttir
Myndir
Smelltu
til að sjá valmynd
Fréttir
Myndir
Gullkorn Gyssurar
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Loka valmynd
Gyssur
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Þáttastjórnandinn
stal senunni
Glæsilegar og vel undirbúnar kappræður af flottari tegundinni áttu sér stað á Stöð 2 í gær.
Stöð 2 ákvað að bjóða helmingi frambjóðenda til embættis Forseta Íslands til skrafs, enda dugar vel að hafa 6 í framboði. Þar var megináherslan lögð á að segja frambjóðendum í hvaða myndavél þeir ættu að horfa sem og að reyna að gera þá kjánalega.
Bladur og Felix, eða Felix og Bladur, hver veit.
Bladur Þórhallsson (Framboðskynning)
Bladur & Felix bjóða sig saman fram
Bladur Þórhallsson segist sennilega vera í forsetaframboði þó hann muni það ekki alveg. Bladur hefur nefnilega gloppótt minni og man t.d. aldrei neitt sem gæti dældað fylgi hans í framboðsbaráttu sinni.
Bladur á allsvakalegan feril að baki að eigin sögn. Hann varð stórbóndi aðeins 13 ára og stundaði búskap áratugum saman. Eftir hann liggja hundruðir bóka sem flestar fjalla um smáríki í krísu. Kenningar hans eru að hans sögn kenndar í háskólum út um allan heim við takmarkalausan fögnuð nemenda, „enda sennilega um að ræða merkustu kenningar samtímans.“
Bladur treysti sér þó ekki í framboð aleinn og óstuddur og því fór svo að hann og sambýlingur hans, kötturinn Felix, ákváðu að bjóða sig fram saman. Þeir stefna á að mynda eins konar forsetatvíeyki á Bessastöðum.
„Við erum enda alveg eins og margir sem þekkja okkur varla í sundur, sérstaklega Felix“, útskýrir Bladur.
Bladur telur afar líklegt að hann og Felix yrðu að öllum líkindum áberandi besti forseti mannkynssögunnar, því þeir séu hvor öðrum frábærari í alla staði. Hann segir að „mögulega sé Felix meira að segja enn sjálfumglaðari en sjálfur ég sjálfur.“
Aðspurður um mögulega ókosti sem hann kunni að búa yfir segir Bladur að hans langstærsti og trúlega eini ókostur sé hógværðin. „Ég ólst upp við það að maður ætti ekki að hrósa sjálfum mér og þó ég segi sjálfur frá þá hefur mér tekist alveg óendanlega vel að tileinka mér svona framúrskarandi hófstillta hógværð.“
Flokkar
Dagsannar fregnir
Hörmuleg tíðindi af Ragnari Róbertssyni
Sportlegar íþróttir
Pólitík og smá stjórnmál
Hámenning og fagurfræði
Samfélags- og fjölmiðlar
Ótrúleg trúmál
Hátæknileg vísindi og vandaðar kannanir
Fjölfréttir
Utan hlandssteinanna
Til baka
Game of Alþingi
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Segir óheppilegt að vera fábjáni
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
En áskilur sér engu að síður rétt til þess
Kata Jak
(Framboðskynning)
Katrínu Jakobsdóttur þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, enda hefur hún haldið þéttingsfast um stjórnartaumana undanfarin ár. Katrín hefur verið talsmaður stöðnunar og miðjumoðs í íslenskum stjórnmálum ásamt bakkabræðrum sínum, þeim Bjaddna og hvaðsemhannheitir þarna í framsókn.
Velur alltaf slæmar myndir af fólki
Rafn Ágúst Ragnarsson, krakkafréttaritari á Vísi velur alltaf allra verstu myndir sem hann finnur af viðfangsefnum sínum.
Við erum öll
almannavarnir
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Ekki alveg öll samt
Drakk aðeins of mikið
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir Arnardóttir Helgadóttir varð fyrir því óláni að drekka yfir sig um síðastliðna helgi og drepast ofan í klofið á sér í bókstaflegri merkingu.
Slíkt hátterni væri svo sem ekki í frásögur færandi á Íslandi, nema fyrir þær sakir að Arndís vildi öllum um kenna nema sjálfri sér.
Jólakveðja
Sjálfstæðisflokksins
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Send beint úr sérstakri sóttvarnaveislu
Trúir því varla að hann sé vanhæfur
Bjarni Ben hefur sagt af sér embætti fjármálaráðherra í bili vegna vanhæfis sem hann telur þó sjálfur ekki augljóst.
Ástæðan fyrir vanhæfi og vanhæfni Bjarna við einkavinavæðingu Íslandsbanka er fyrst og fremst sú að Umboðsmaður Alþingis telur að ráðherrar eigi ekki að gefa feðrum sínum banka.
Samherjastöðin
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Frábær dagskrá!
Bjarni Ben staðinn að
innherjasvindli
í 114 skipti
Bjarni Ben, innherja- og spillingarmálaráðherra viðurkennir fúslega að auðvitað hafi hann verið að skara eld að eigin köku rétt eins og alltaf þegar hann gaf fjölskyldu sinni og vildarvinum Íslandsbanka nú um daginn.
Svandís Oddsson
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
fetar troðnar slóðir
xB 2014
Formaður Framsóknar farinn í felur
Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sigurði Inga Jóhannssyni. Síðast sást til Sigurðar á Búnaðarþingi um nýliðna helgi.
Hann var íklæddur grænum nærbuxum og bindi í stíl, bæði herra og dömu.
Einstigi Bjarna Ben
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Liggur til allra átta
Risastór smitbylgja í vændum
Enn fleiri besserwisseraráðherra má finna í nýjustu ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur en þeirri fyrri, sem þó var uppfull af slíku ráðherraafbrigði.
Þannig má segja að besserwisseraafrigðið sé búið að taka ríkisstjórnina yfir, enda mun meira smitandi en almenn rökfesta eða skynsemi.
Hart sótt að Guðna
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Spennandi kosningar framundan
Nýi
heilbrigðisráðherrann
verri en enginn
„Fall er fararheill og svoleiðis!“ sagði glænýi óheilbrigðismálaráðherrann þegar blaðamaður Gys.is spurði hann út í skammvinnan og ótrúlega misheppnaðan feril hans í þessu nýja starfi sem hann ræður bersýnilega engan veginn við.
Gæslandair
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Engin þörf fyrir flugfreyjur
Bjarni Ben...
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
... er samur við sig.
Slagorð Framsóknar þykir best
Íslenska slagorðanefndin hefur komist að þeirri niðurstöðu að slagorð Framsóknarflokksins: „Er ekki bara best að kjós'ekki rassgat?“ sé besta slagorð kosningabaráttunnar að þessu sinni.
Viðbragðsáætlun
íslenskra stjórnvalda
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
vegna covid 19 veirunnar
Þeir sem ætla ekki á tónleika greiða samt fyrir þá
Eignatilfærsla ríkisstjórnarinnar ©
heldur áfram
fer vaxandi. Eins og þekkt er hefur ríkisstjórn Íslands stundað talsverða (og oftar en ekki afar ósanngjarna) eignatilfærslu á meðan á þessum heimsfaraldri hefur staðið.
Þannig hafa t.a.m. tekjur tveggja þjóðhátíða verið hirtar af Eyjamönnum og afhentar Icelandair á ryðguðu en þó gullhúðuðu grillfati með merkingunni „XS - Land tækifæranna fyrir íslensku einokunarelítuna og einkavini hennar, þeink jú verrí möts stjúpidós!“
Örugg gagnaeyðing
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
xS
Nýir og nýstárlegir réttir í Staðarskála
„Það er æðislega gaman og fjör og þannig og frábært líka og svoleiðis að geta boðið þú veist starfsfólki og alls konar gestum og nærsveita- og nærbuxnafólki og þú veist bara úglenskum túristum sem og auðvitað íslenskum ferðamönnum og bara landsmönnum öllum og vinum þeirra og vandamönnum þú veist upp á þessar mikilvægu vörur,“ segir Jón Viðar Stefánsson forstöðu- og yfirmaður innpröngunarsviðs N1.
Miskunnarlausi
Samherjinn
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Stórskemmtilegt ævintýri fyrir kapítalista á öllum aldri
Þorsteinn Már gengur enn laus
Þorsteinn Már Baldvinsson, einn allra mesti glæpamaður Íslands gengur enn laus þrátt fyrir að langt sé síðan upp komst um glæpi hans.
Margþætt ástæða er fyrir viðvarandi frelsi Þorsteins, sem þó ætti fyrir löngu að vera orðið afar takmarkað.
Sexfaldir tvífarar
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Eða bara Páll Giuliani
Fréttir
Myndir
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Fara efst á síðu