Fréttir
Myndir
Gullkorn Gyssurar
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Fréttir
Myndir
Smelltu
til að sjá valmynd
Fréttir
Myndir
Gullkorn Gyssurar
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Loka valmynd
Gyssur
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Drakk aðeins of mikið
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir Arnardóttir Helgadóttir varð fyrir því óláni að drekka yfir sig um síðastliðna helgi og drepast ofan í klofið á sér í bókstaflegri merkingu.
Slíkt hátterni væri svo sem ekki í frásögur færandi á Íslandi, nema fyrir þær sakir að Arndís vildi öllum um kenna nema sjálfri sér.
Samkomubannið verður senn bannað
Feginn að allt sé að falla í fyrri skorður
Þolir illa breytingar
Ragnar Róbertsson segist afar feginn því að allt sé nú að verða eðlilegt í samfélaginu á ný. Hann segir að samkomutakmarkanir hafi reynt mikið á sig.
„Mér finnst best að vera alveg á kafi í fólki og þá meina ég ekkert endilega í sundi, heldur bara hvar sem er,“ útskýrir Ragnar.
„Það er ótrúlega erfitt að þurfa að halda tveggja metra fjarlægð frá fólki þegar maður vill helst kyssa það og knúsa og nudda sér utan í það.“
Að sögn Ragnars óttaðist hann um tíma að hann myndi aldrei bíða þess bætur að komast ekki í sund í nokkrar vikur.
„Þess vegna beið ég líka í röð í þrjá og hálfan sólarhring þegar ég frétti að sundlaugarnar ættu að opna að nýju.“
Ragnar segist svo hafa verið í sundi í álíka langan tíma og hann eyddi í röðinni, svo sundþyrstur hafi hann verið orðinn.
„Ég var ekki bara með rúsínufingur, ég var bara ein stór klórangandi rúsínuklessa!“ segir Ragnar og ljómar af ánægju.
En lokanir sundlauganna voru ekki það sem reyndi hvað mest á Ragnar.
„Nei, það var messufallið. Það er alveg hræðilegt að komast ekki til messu. Ég er alveg háður því að heyra lesið úr Kórintubréfum Páls postula og þá sérstaklega því seinna.“
Þrátt fyrir að messum hafi verið streymt á netinu segir Ragnar að ekkert komi í stað þess að mæta í messu í raunheimum.
„Mér finnst maður bara ekki ná neinni nánd á netinu, hvorki við guð né menn. Ég held að guð sé eiginlega ekkert á netinu. Hún á örugglega hvorki síma né tölvu, svona þegar maður pælir í því.“
Ragnar segist ekki geta beðið eftir því að barirnir opni líka.
„Þetta er hin heilaga þrenning lífs míns. Sundlaugar, kirkjur og barir. Draumur minn er sá að í náinni framtíð geti ég eytt öllum mínum dögum á góðum sundlaugamessubar. Og ef sá draumur rætist ekki, þá væri ég allavega til í að hafa aðgang að minibar og fótabaði í kirkjunni.“
Flokkar
Dagsannar fregnir
Hörmuleg tíðindi af Ragnari Róbertssyni
Sportlegar íþróttir
Pólitík og smá stjórnmál
Hámenning og fagurfræði
Samfélags- og fjölmiðlar
Ótrúleg trúmál
Hátæknileg vísindi og vandaðar kannanir
Fjölfréttir
Utan hlandssteinanna
Til baka
Game of Alþingi
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Segir óheppilegt að vera fábjáni
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
En áskilur sér engu að síður rétt til þess
Trúir því varla að hann sé vanæfur
Bjarni Ben hefur sagt af sér embætti fjármálaráðherra í bili vegna vanhæfis sem hann telur þó sjálfur ekki augljóst.
Ástæðan fyrir vanhæfi og vanhæfni Bjarna við einkavinavæðingu Íslandsbanka er fyrst og fremst sú að Umboðsmaður Alþingis telur að ráðherrar eigi ekki að gefa feðrum sínum banka.
Bjarni Ben staðinn að
innherjasvindli
í 114 skiptir
Bjarni Ben, innherja- og spillingarmálaráðherra viðurkennir fúslega að auðvitað hafi hann verið að skara eld að eigin köku rétt eins og alltaf þegar hann gaf fjölskyldu sinni og vildarvinum Íslandsbanka nú um daginn.
Við erum öll
almannavarnir
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Ekki alveg öll samt
Formaður Framsóknar farinn í felur
Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sigurði Inga Jóhannssyni. Síðast sást til Sigurðar á Búnaðarþingi um nýliðna helgi.
Hann var íklæddur grænum nærbuxum og bindi í stíl, bæði herra og dömu.
Jólakveðja
Sjálfstæðisflokksins
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Send beint úr sérstakri sóttvarnaveislu
Risastór smitbylgja í vændum
Enn fleiri besserwisseraráðherra má finna í nýjustu ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur en þeirri fyrri, sem þó var uppfull af slíku ráðherraafbrigði.
Þannig má segja að besserwisseraafrigðið sé búið að taka ríkisstjórnina yfir, enda mun meira smitandi en almenn rökfesta eða skynsemi.
Samherjastöðin
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Frábær dagskrá!
Nýi
heilbrigðisráðherrann
verri en enginn
„Fall er fararheill og svoleiðis!“ sagði glænýi óheilbrigðismálaráðherrann þegar blaðamaður Gys.is spurði hann út í skammvinnan og ótrúlega misheppnaðan feril hans í þessu nýja starfi sem hann ræður bersýnilega engan veginn við.
Svandís Oddsson
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
fetar troðnar slóðir
Eldhúsdagsdansinn
Slagorð Framsóknar þykir best
Íslenska slagorðanefndin hefur komist að þeirri niðurstöðu að slagorð Framsóknarflokksins: „Er ekki bara best að kjós'ekki rassgat?“ sé besta slagorð kosningabaráttunnar að þessu sinni.
Einstigi Bjarna Ben
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Liggur til allra átta
Þeir sem ætla ekki á tónleika greiða samt fyrir þá
Eignatilfærsla ríkisstjórnarinnar ©
heldur áfram
fer vaxandi. Eins og þekkt er hefur ríkisstjórn Íslands stundað talsverða (og oftar en ekki afar ósanngjarna) eignatilfærslu á meðan á þessum heimsfaraldri hefur staðið.
Þannig hafa t.a.m. tekjur tveggja þjóðhátíða verið hirtar af Eyjamönnum og afhentar Icelandair á ryðguðu en þó gullhúðuðu grillfati með merkingunni „XS - Land tækifæranna fyrir íslensku einokunarelítuna og einkavini hennar, þeink jú verrí möts stjúpidós!“
Hart sótt að Guðna
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Spennandi kosningar framundan
Nýir og nýstárlegir réttir í Staðarskála
„Það er æðislega gaman og fjör og þannig og frábært líka og svoleiðis að geta boðið þú veist starfsfólki og alls konar gestum og nærsveita- og nærbuxnafólki og þú veist bara úglenskum túristum sem og auðvitað íslenskum ferðamönnum og bara landsmönnum öllum og vinum þeirra og vandamönnum þú veist upp á þessar mikilvægu vörur,“ segir Jón Viðar Stefánsson forstöðu- og yfirmaður innpröngunarsviðs N1.
Gæslandair
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Engin þörf fyrir flugfreyjur
Bjarni Ben...
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
... er samur við sig.
Þorsteinn Már gengur enn laus
Þorsteinn Már Baldvinsson, einn allra mesti glæpamaður Íslands gengur enn laus þrátt fyrir að langt sé síðan upp komst um glæpi hans.
Margþætt ástæða er fyrir viðvarandi frelsi Þorsteins, sem þó ætti fyrir löngu að vera orðið afar takmarkað.
Viðbragðsáætlun
íslenskra stjórnvalda
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
vegna covid 19 veirunnar
Nýtt Íslandsmet í valdhroka
Lilja Alfreðsdóttir er trúlega, líklega og örugglega mjög og afar ánægð með nýtt Íslandsmet sitt í valdhroka.
Ómögulegt er þó að vita með nokkurri vissu hvort svo sé, því hún neitar að tjá sig við fjölmiðla.
Örugg gagnaeyðing
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
xS
Vonar að það fari að gjósa fljótlega
Magnús Geir Eyjólfsson, fréttamaður RÚV, segist langþreyttur á bið eftir eldgosi á Reykjanesi.
Magnús hefur þurft að standa úti í hrauni síðan í fyrradag með Keili í bakgrunni, bíðandi eftir því að mögulegt gos hefjist.
Miskunnarlausi
Samherjinn
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Stórskemmtilegt ævintýri fyrir kapítalista á öllum aldri
Covid-19
litakóðakerfi
vekur upp spurningar
Nýtt og glæsilegt Covid-19 viðvörunarkerfi hefur verið tekið í notkun.
Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, sérfræðingur hjá almannavarnadeild, segir að kerfinu sé ætlað að koma til móts við takmarkaða greind almennings.
Sexfaldir tvífarar
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Eða bara Páll Giuliani
Fréttir
Myndir
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Fara efst á síðu