Fréttir
Myndir
Gullkorn Gyssurar
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Fréttir
Myndir
Smelltu
til að sjá valmynd
Fréttir
Myndir
Gullkorn Gyssurar
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Loka valmynd
Gyssur
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Píratar jafn vitlausir eftir kosningar eins og fyrir
Andrés Önd Jónsson, fyrrverandi þingmaður Pírata og þar áður fyrrverandi þingmaður Vinstri-vinstri-vinstri grænna var gestur í Vikulokunum á RÚV.
Spurður út í afar takmarkað fylgi Pírata átti Andrés erfitt með að finna svör sem voru honum sjálfum að skapi. Hann var helst á þeirri skoðun að kjósendur væru svo vitlausir að þeir hópuðust um þá flokka sem mælast með mest fylgi í könnunum.
Eins og sjá má er tveggja sentimetrareglan nánast virt hjá þessum vinkvennahópi
Eingöngu hægt að smitast af ókunnugum
Samkvæmt nýjum og skýrari reglum
Nauðsynlegt er nú að breyta sóttvarnareglum til að koma í veg fyrir að Þórdís Kolbrún ferðamálaráðherra hafi brotið þær. Sem hún gerði einmitt stöðugt, stanslaust, án afláts, oft og ítrekað allan laugardaginn.
Hún skrásetti það meira að segja vel og vandlega sjálf, en sagði svo síðar að sú skrásetning hafi sennilega verið smávægileg mistök.
Hún segir að auðvitað vilji fína og fræga fólkið fá að skemmta sér án þess að fylgja reglum sem eru settar fyrir venjulega, óbreytta borgara. En kannski sé ekki rétt að monta sig af því fyrir framan almúgaskríl sem eigi auðvitað að fylgja öllum reglum sem frá stjórnvöldum komi.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist hvorki þora né vilja gagnrýna ráðamenn og því verði reglunum bara breytt til að koma til móts við óábyrga hegðun Þórdísar Kolbrúnar.
Framvegis verði aðeins að halda tveggja metra reglu þegar um er að ræða ókunnugt fólk.
Eða eins og Þórólfur orðaði það á blaðamannafundi fyrr í dag: „Ef þú þekkir manneskju vel, kannast lauslega við hana eða þekkir einhvern sem þekkir einhvern sem þekkir hana, náið eða illa, þá er engin sérstök ástæða til að gæta varúðar. En passið ykkur á ókunnugum því þeir geta hæglega verið sýktir. Samt ekki útlendingar, því þeir hafa ekkert tengslanet og geta þess vegna ekki smitað neinn nema í versta falli sjálfa sig.
En ef að t.d. tveir miðaldra menn á mismunandi aldri mætast á götu og annar þeirra eða báðir eru hvor um sig hinum ókunnugur að hluta eða í heild þá myndi ég telja rétt að annar eða báðir virði tveggja metra regluna.
Samt mætti hugsa sér að ef báðir notast við eins metra reglu, þá reiknast mér til að það séu samtals um tveir metrar og þá gæti það dugað í sjálfu sér, nema auðvitað ef annar þeirra virðir hvorki eins né tveggja metra regluna. Þannig að þessar reglur eru alveg skýrar í mínum huga, enda er tilgangurinn með því að flækja reglurnar svona fáránlega mikið fyrst og fremst sá að einfalda þær og skýra.“
Flokkar
Dagsannar fregnir
Hörmuleg tíðindi af Ragnari Róbertssyni
Sportlegar íþróttir
Pólitík og smá stjórnmál
Hámenning og fagurfræði
Samfélags- og fjölmiðlar
Ótrúleg trúmál
Hátæknileg vísindi og vandaðar kannanir
Fjölfréttir
Utan hlandssteinanna
Til baka
Game of Alþingi
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Segir óheppilegt að vera fábjáni
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
En áskilur sér engu að síður rétt til þess
Þáttastjórnendur
stóðu í ströngu
Eitt heitasta þáttastjórnendapar RÚV síðustu misserin, þau Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Baldvin Þór Bergsson stóðu heldur betur í ströngu í gær, þegar þau reyndu af fremsta megni að hafa hemil á forystufólki íslenskra stjórnmálaflokka sem og Jóhannesi Kófara.
Þáttastjórnandinn
stal senunni
Glæsilegar og vel undirbúnar kappræður af flottari tegundinni áttu sér stað á Stöð 2 í gær.
Stöð 2 ákvað að bjóða helmingi frambjóðenda til embættis Forseta Íslands til skrafs, enda dugar vel að hafa 6 í framboði. Þar var megináherslan lögð á að segja frambjóðendum í hvaða myndavél þeir ættu að horfa sem og að reyna að gera þá kjánalega.
Við erum öll
almannavarnir
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Ekki alveg öll samt
Kata Jak
(Framboðskynning)
Katrínu Jakobsdóttur þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, enda hefur hún haldið þéttingsfast um stjórnartaumana undanfarin ár. Katrín hefur verið talsmaður stöðnunar og miðjumoðs í íslenskum stjórnmálum ásamt bakkabræðrum sínum, þeim Bjaddna og hvaðsemhannheitir þarna í framsókn.
Jólakveðja
Sjálfstæðisflokksins
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Send beint úr sérstakri sóttvarnaveislu
Bladur Þórhallsson
(Framboðskynning)
Bladur Þórhallsson segist sennilega vera í forsetaframboði þó hann muni það ekki alveg. Bladur hefur nefnilega gloppótt minni og man t.d. aldrei neitt sem gæti dældað fylgi hans í framboðsbaráttu sinni.
Samherjastöðin
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Frábær dagskrá!
Velur alltaf slæmar myndir af fólki
Rafn Ágúst Ragnarsson, krakkafréttaritari á Vísi velur alltaf allra verstu myndir sem hann finnur af viðfangsefnum sínum.
Svandís Oddsson
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
fetar troðnar slóðir
xB 2014
Drakk aðeins of mikið
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir Arnardóttir Helgadóttir varð fyrir því óláni að drekka yfir sig um síðastliðna helgi og drepast ofan í klofið á sér í bókstaflegri merkingu.
Slíkt hátterni væri svo sem ekki í frásögur færandi á Íslandi, nema fyrir þær sakir að Arndís vildi öllum um kenna nema sjálfri sér.
Einstigi Bjarna Ben
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Liggur til allra átta
Trúir því varla að hann sé vanhæfur
Bjarni Ben hefur sagt af sér embætti fjármálaráðherra í bili vegna vanhæfis sem hann telur þó sjálfur ekki augljóst.
Ástæðan fyrir vanhæfi og vanhæfni Bjarna við einkavinavæðingu Íslandsbanka er fyrst og fremst sú að Umboðsmaður Alþingis telur að ráðherrar eigi ekki að gefa feðrum sínum banka.
Hart sótt að Guðna
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Spennandi kosningar framundan
Bjarni Ben staðinn að
innherjasvindli
í 114 skipti
Bjarni Ben, innherja- og spillingarmálaráðherra viðurkennir fúslega að auðvitað hafi hann verið að skara eld að eigin köku rétt eins og alltaf þegar hann gaf fjölskyldu sinni og vildarvinum Íslandsbanka nú um daginn.
Gæslandair
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Engin þörf fyrir flugfreyjur
Bjarni Ben...
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
... er samur við sig.
Formaður Framsóknar farinn í felur
Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sigurði Inga Jóhannssyni. Síðast sást til Sigurðar á Búnaðarþingi um nýliðna helgi.
Hann var íklæddur grænum nærbuxum og bindi í stíl, bæði herra og dömu.
Viðbragðsáætlun
íslenskra stjórnvalda
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
vegna covid 19 veirunnar
Risastór smitbylgja í vændum
Enn fleiri besserwisseraráðherra má finna í nýjustu ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur en þeirri fyrri, sem þó var uppfull af slíku ráðherraafbrigði.
Þannig má segja að besserwisseraafrigðið sé búið að taka ríkisstjórnina yfir, enda mun meira smitandi en almenn rökfesta eða skynsemi.
Örugg gagnaeyðing
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
xS
Nýi
heilbrigðisráðherrann
verri en enginn
„Fall er fararheill og svoleiðis!“ sagði glænýi óheilbrigðismálaráðherrann þegar blaðamaður Gys.is spurði hann út í skammvinnan og ótrúlega misheppnaðan feril hans í þessu nýja starfi sem hann ræður bersýnilega engan veginn við.
Miskunnarlausi
Samherjinn
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Stórskemmtilegt ævintýri fyrir kapítalista á öllum aldri
Slagorð Framsóknar þykir best
Íslenska slagorðanefndin hefur komist að þeirri niðurstöðu að slagorð Framsóknarflokksins: „Er ekki bara best að kjós'ekki rassgat?“ sé besta slagorð kosningabaráttunnar að þessu sinni.
Sexfaldir tvífarar
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Eða bara Páll Giuliani
Fréttir
Myndir
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Fara efst á síðu