Fréttir
Myndir
Gullkorn Gyssurar
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Fréttir
Myndir
Smelltu
til að sjá valmynd
Fréttir
Myndir
Gullkorn Gyssurar
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Loka valmynd
Gyssur
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Sló heimsmet í Haddna í beinni útsendingu
Jón Pétur Zimsen sem nýlega skaust inn á þing fyrir Sjálfgræðisflokkinn átti stórleik í beinni útsendingu í Vikulokunum um helgina.
Jón gerði sér lítið fyrir og sló heimsmet í Haddna án atrennu. Jón þurfti ekki einu sinni að draga andann fyrr en langt var liðið á viðureignina.
Svona lítur aðalskipulag borgarinnar út í augnablikinu
Ósýnilega malbikið veldur vonbrigðum
Hentar illa fyrir raunverulega umferð
Svo virðist sem ósýnilega malbikið sem Reykjavíkurborg hefur notað til viðhalds og endurnýjunar gatnakerfisins undanfarin ár „búi yfir afar takmörkuðum slitstyrk og komi einungis að raunverulegu gagni í réttu hlutfalli við þykkt þess“, eins og segir í frumathugunarskýrslu Vegagerðarinnar.
Borgarstjóri leggur til að stofnuð verði ósýnileg nefnd til þess að fara yfir málið. Stefnt er að því að nefndin skili ósýnilegum niðurstöðum innan skamms.
Í fréttatilkynningu frá borgarstjóra kemur fram að raunverulegt malbik hafi þó verið lagt á alla hjólreiðastíga. Borgin hafi hins vegar greint ákveðið sparnaðartækifæri í ósýnilegu malbiki, og því hafi verið ráðnir ósýnilegir verktakar til verksins, í tilraunaskyni.
Þeir hafi einungis fengið greidd ósýnileg laun, og því hafi umtalsverður og raunverulegur sparnaður náðst fram í bókhaldi borgarinnar.
Búist hafi verið við því að í kjölfar þess að hjólreiðastígar hafi verið lagðir þvers og kruss um alla borg, myndu borgarbúar allir ferðast hjólandi, eða á fljúgandi einhyrningum, og því hefði ósýnilega malbikið átt að duga vel, ef ekki gott betur.
Fleiri nýstárlegar samgöngubætur eru fyrirhugaðar hjá borginni. Engar hraðahindranir verða framvegis innan borgarmarkanna. Í stað þeirra koma kærleiksfylltir konfektmolar. Hringtorg munu einnig heyra sögunni til, og munu ævintýralegir regnbogaslóðar fylla skarð þeirra.
VB
Flokkar
Dagsannar fregnir
Hörmuleg tíðindi af Ragnari Róbertssyni
Sportlegar íþróttir
Pólitík og smá stjórnmál
Hámenning og fagurfræði
Samfélags- og fjölmiðlar
Ótrúleg trúmál
Hátæknileg vísindi og vandaðar kannanir
Fjölfréttir
Utan hlandssteinanna
Til baka
Game of Alþingi
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Segir óheppilegt að vera fábjáni
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
En áskilur sér engu að síður rétt til þess
Píratar jafn vitlausir eftir kosningar eins og fyrir
Andrés Önd Jónsson, fyrrverandi þingmaður Pírata og þar áður fyrrverandi þingmaður Vinstri-vinstri-vinstri grænna var gestur í Vikulokunum á RÚV.
Spurður út í afar takmarkað fylgi Pírata átti Andrés erfitt með að finna svör sem voru honum sjálfum að skapi. Hann var helst á þeirri skoðun að kjósendur væru svo vitlausir að þeir hópuðust um þá flokka sem mælast með mest fylgi í könnunum.
Þáttastjórnendur
stóðu í ströngu
Eitt heitasta þáttastjórnendapar RÚV síðustu misserin, þau Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Baldvin Þór Bergsson stóðu heldur betur í ströngu í gær, þegar þau reyndu af fremsta megni að hafa hemil á forystufólki íslenskra stjórnmálaflokka sem og Jóhannesi Kófara.
Við erum öll
almannavarnir
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Ekki alveg öll samt
Þáttastjórnandinn
stal senunni
Glæsilegar og vel undirbúnar kappræður af flottari tegundinni áttu sér stað á Stöð 2 í gær.
Stöð 2 ákvað að bjóða helmingi frambjóðenda til embættis Forseta Íslands til skrafs, enda dugar vel að hafa 6 í framboði. Þar var megináherslan lögð á að segja frambjóðendum í hvaða myndavél þeir ættu að horfa sem og að reyna að gera þá kjánalega.
Jólakveðja
Sjálfstæðisflokksins
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Send beint úr sérstakri sóttvarnaveislu
Kata Jak
(Framboðskynning)
Katrínu Jakobsdóttur þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, enda hefur hún haldið þéttingsfast um stjórnartaumana undanfarin ár. Katrín hefur verið talsmaður stöðnunar og miðjumoðs í íslenskum stjórnmálum ásamt bakkabræðrum sínum, þeim Bjaddna og hvaðsemhannheitir þarna í framsókn.
Samherjastöðin
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Frábær dagskrá!
Bladur Þórhallsson
(Framboðskynning)
Bladur Þórhallsson segist sennilega vera í forsetaframboði þó hann muni það ekki alveg. Bladur hefur nefnilega gloppótt minni og man t.d. aldrei neitt sem gæti dældað fylgi hans í framboðsbaráttu sinni.
Svandís Oddsson
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
fetar troðnar slóðir
Herrann í Hádegismóum...
Velur alltaf slæmar myndir af fólki
Rafn Ágúst Ragnarsson, krakkafréttaritari á Vísi velur alltaf allra verstu myndir sem hann finnur af viðfangsefnum sínum.
Einstigi Bjarna Ben
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Liggur til allra átta
Drakk aðeins of mikið
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir Arnardóttir Helgadóttir varð fyrir því óláni að drekka yfir sig um síðastliðna helgi og drepast ofan í klofið á sér í bókstaflegri merkingu.
Slíkt hátterni væri svo sem ekki í frásögur færandi á Íslandi, nema fyrir þær sakir að Arndís vildi öllum um kenna nema sjálfri sér.
Hart sótt að Guðna
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Spennandi kosningar framundan
Trúir því varla að hann sé vanhæfur
Bjarni Ben hefur sagt af sér embætti fjármálaráðherra í bili vegna vanhæfis sem hann telur þó sjálfur ekki augljóst.
Ástæðan fyrir vanhæfi og vanhæfni Bjarna við einkavinavæðingu Íslandsbanka er fyrst og fremst sú að Umboðsmaður Alþingis telur að ráðherrar eigi ekki að gefa feðrum sínum banka.
Gæslandair
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Engin þörf fyrir flugfreyjur
Bjarni Ben...
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
... er samur við sig.
Bjarni Ben staðinn að
innherjasvindli
í 114 skipti
Bjarni Ben, innherja- og spillingarmálaráðherra viðurkennir fúslega að auðvitað hafi hann verið að skara eld að eigin köku rétt eins og alltaf þegar hann gaf fjölskyldu sinni og vildarvinum Íslandsbanka nú um daginn.
Viðbragðsáætlun
íslenskra stjórnvalda
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
vegna covid 19 veirunnar
Formaður Framsóknar farinn í felur
Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sigurði Inga Jóhannssyni. Síðast sást til Sigurðar á Búnaðarþingi um nýliðna helgi.
Hann var íklæddur grænum nærbuxum og bindi í stíl, bæði herra og dömu.
Örugg gagnaeyðing
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
xS
Risastór smitbylgja í vændum
Enn fleiri besserwisseraráðherra má finna í nýjustu ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur en þeirri fyrri, sem þó var uppfull af slíku ráðherraafbrigði.
Þannig má segja að besserwisseraafrigðið sé búið að taka ríkisstjórnina yfir, enda mun meira smitandi en almenn rökfesta eða skynsemi.
Miskunnarlausi
Samherjinn
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Stórskemmtilegt ævintýri fyrir kapítalista á öllum aldri
Nýi
heilbrigðisráðherrann
verri en enginn
„Fall er fararheill og svoleiðis!“ sagði glænýi óheilbrigðismálaráðherrann þegar blaðamaður Gys.is spurði hann út í skammvinnan og ótrúlega misheppnaðan feril hans í þessu nýja starfi sem hann ræður bersýnilega engan veginn við.
Sexfaldir tvífarar
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Eða bara Páll Giuliani
Fréttir
Myndir
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Fara efst á síðu