Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Loka valmynd

Svona lítur fésbókin út hjá mörgum þessa dagana.


Rautt eða ekki rautt, það er spurningin. 17 hafa látist úr bræði eða leiðindum.


Staðfest er að 17 knattspyrnuáhugamenn hafi látist úr bræði eða leiðindum eftir að hafa eytt síðastliðnum sólarhringum í umræður um rautt spjald.

Þetta minnir óhjákvæmilega á umræður sem fram fóru um stóra ,,Suárez & Evra" málið, en þá létust yfir 60 manns sökum skapofsa.


Ekki virðist enn vera farið að draga úr umræðunni og óttast sérfræðingar að tala látinna eigi eftir að hækka.

Eins furðulega og það hljómar þá virðast íslenskir karlmenn á öllum aldri telja að enski boltinn sé til í alvörunni.

Ekki er vitað hvernig best er að ráða bug á slíkum ranghugmyndum, en talið er að fyrsta skrefið sé að virða upphrópanir þeirra að vettugi.







xB 2014






Fara efst á síðu