Í tilefni dagsins verður sett upp risastórt almenningssalerni á miðju Ingólfstorgi, þar sem landsmenn geta att kappi í klósettfimi.
Eins verða sögufræg salerni til sýnis, og gestir fá t.a.m. tækifæri til að setjast á klósettið sem Justin Bieber kúkaði í.
Klósettfimi hefur notið vaxandi vinsælda upp á síðkastið. Keppt er í úthaldsgreinum eins og langlundarpissi og maraþonskitu, en einnig er keppt við klukkuna í greinum eins og leifturhægðum og bjórpissingi.
Leikar hefjast á slaginu 18. Rétt er að minna þá sem ætla að taka þátt á það að mæta vel undirbúnir til leiks. Muna að taka með sér klósettpappír, og halda í sér þangað til keppni hefst.
Dagskrá
17:30 Niðurgangur frá Hlemmi niður á Ingólfstorg.
18:00 Hátíðarávarp. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ávarpar þjóðina og fer yfir eftirminnilegustu klósettferðir sínar.
18:15 Hraðkúkkeppni: Teflt við páfann.
18:30 Klósettfimi, ýmsar greinar - Iss, piss og pelamó, kappskeiningar, bjórpissingur, skitið upp á bak ofl.
19:00 Klósettpása.
19:10 Heiðursgestir ganga um Ingólfstorg í hægðum sínum.
19:30 Lok. Giulia Enders áritar bók sína, Þarmar með sjarma.
RÚV