Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Loka valmynd

Jóna Hrönn er einn af fjölmörgum umboðsmönnum Guðs á Íslandi


Guð segir upp áskrift að Stöð 2 Fær samt ennþá reikning um hver mánaðamót


Í vikunni bárust fréttir af því að Guð almáttugur ™ hefði sagt upp áskrift að Stöð 2.

Ýmsar getgátur hafa verið á lofti um ástæður uppsagnarinnar. Sumir hafa haldið því fram að Guð hafi verið að mótmæla því að ófaglærður aðili sjái um sunnudagsmessur stöðvarinnar, sem og því að þær snúist í raun meira um fótbolta en trú.


Aðrir segja að miðlar séu Guði almennt ekki að skapi, og skipti þá litlu hvort um sé að ræða spámiðla eða fjölmiðla.

Guð sjálfur segir ástæður uppsagnarinnar miklu einfaldari: „Mér fannst dagskráin bara frekar leiðinleg og áskriftargjaldið allt of hátt. Svo fer í taugarnar á mér að áskriftarsjónvarp sýni auglýsingar inni í miðjum þáttum. En hins vegar eru þetta gamlar fréttir, því það er langt síðan ég sagði áskriftinni upp. En ég fæ samt enn reikning um hver mánaðamót, alveg sama hversu oft ég hringi og kvarta.“

Guð segir að hann hefði einnig sagt upp áskrift að RÚV, ef það væri í boði. Enda sé hann nú kominn með Netflix, og löngu hættur að líta á lífið sem línulaga dagskrá.

Eyjan.is






Herrann í Hádegismóum...






Fara efst á síðu