Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Loka valmynd

Kristján Valur guðs-aðdáandi, og Ólafur Helgi Stones-aðdáandi. Ólafur tengist ekki fréttinni.


Mannréttindi að fá að sniðganga mannréttindi annarra Segir víxlubiskup í Skálholti


„Sem betur fer lifa fordómar gagnvart ákveðnum þjóðfélagshópum enn góðu lífi innan kirkjunnar“, segir Kristján Valur Ingólfsson, víxlubiskup, patríarki, kardináli, ajatolli og sitjandi æðstiprestur í fjarveru aðalklerks.

„Það eru mikilfengleg mannréttindi fólgin í því að mega svívirða og fótumtroða mannréttindi ýmiskonar minnihlutahópa. Til þess höfum við jú Þjóðkirkju ekki satt?“

Kristján Valur segir að sér sé þó ekkert sérstaklega illa við samkynhneigða.

„Mér finnst bara að við höfum nútímavætt kirkjuna allt of hratt síðustu tvö þúsund ár eða svo. Það er mikill missir að mörgum sið, sem aflagður hefur verið“, útskýrir Krisján Valur.

Hann nefnir í þessu sambandi sérstaklega galdrabrennur.

„Heldurðu að það væri ekki fjör að halda galdrabrennuhátíð einu sinni á ári, t.d. um Verslunarmannahelgina? En það er fleira sem ég sakna frá fyrri dögum. Auðvitað ætti t.d. líka að grýta fólk til dauða fyrir framhjáhald, slaka kirkjusókn, eða óhóflega farsímanotkun.“

Vísir






Herrann í Hádegismóum...






Fara efst á síðu