Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Loka valmynd

Árni Páll er óumdeilanlega formaður Samfylkingarinnar


Árni Páll vill rússneska kosningu Hulunni svipt af innanflokksátökum


Í ítarlegu viðtali við Hallgrím Thorsteinsson, í nýjum þætti hans sem stofnað var til eftir að Hallgrímur sneri heim frá því að hafa prófað að starfa á almennum vinnumarkaði í nokkrar vikur, segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, að hann sé formaður Samfylkingarinnar.

Árni Páll segir að það sé „eðli lýðræðisins“, að sá sem kosinn sé í lýðræðislegri kosningu, sé lýðræðislega kjörinn. Jafnvel þó aðeins muni einu atkvæði.

Hann segir einnig að innan Samfylkingarinnar ríki almennt sú hefð, að enginn bjóði sig fram gegn sitjandi formanni.

„En Sigríður Ingibjörg fann svindlleið framhjá þessari hefð. Ég sat sitjandi eins lengi og ég gat. Alveg þangað til ég var í svo miklum spreng, að ég varð bara að standa upp til að hlaupa á Samfylkingarsalernið. Þá notaði hún tækifærið og skutlaði inn mótframboði sínu“, útskýrir Árni Páll.

Hann leitar nú leiða til boða til nýs landsfundar, svo hann geti spilað út nýju trompi, og tryggt sér rúmlega 100% atkvæða.

„Ég er búinn að eyða öllum mínum frístundum undanfarið í að sérsmíða kappaksturshjólastól með innbyggðu klósetti, talsíma, faxtæki, örbylgjuofni, og meira að segja sérstökum brúnkukremssprautara. Þá get ég verið alveg 100% sitjandi formaður, og þarf bara aldrei að standa upp“, segir Árni Páll og brosir breitt.

Það er því ólíklegt að einhver bjóði sig fram gegn mjög svo sitjandi formanni á næsta landsfundi Samfylkingarinnar, sem haldinn verður við fyrsta mögulega tækifæri, eða jafnvel fyrr, að sögn formannsins.






„Löggulíf“






Fara efst á síðu