Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Loka valmynd

Mæjó


Sviptingar í majónesheiminum Gríðarlega spennandi atburðarás, rakin í máli og myndum


Þrátt fyrir að majónes- og sósugerð Gunnars hafi skilað um milljón krónum í hagnað á mánuði, er fyrirtækið nú talið andlega gjaldþrota.

Framleiðslu verður þó haldið áfram, eftir einföld og sársaukalaus kennitöluskipti.


Nýráðinn framkvæmdastjóri, Hugrún Sigurjónsdóttir, segir að engu verði breytt í rekstrinum.

„Reksturinn hefur gengið virkilega vel, svo við ætlum ekki að breyta neinu. Að vísu höfum við ráðist í markaðsherferð, sem felst fyrst og fremst í því að ég tók mynd af remolaði, dijon hunangssósu og mango karrý sósu, og setti inn á Facebook. Sú markaðsherferð hefur gengið vonum framar, því ég er búin að fá tvö læk og líka tvö komment.“




Að sögn heimildarmanna Gys.is má rekja upphafið að endinum til þess þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson náði tökum á majónesvanda sínum.

Hannes hafði fram að því neytt u.þ.b. 12% af framleiðslu fyrirtækisins, en lét svo skyndilega af allri majónesneyslu, þegar hann fyrir misskilning hélt að eigendur Gunnars Majóness hefðu glatað dálæti sínu á Davíð Oddssyni.

Undanfarið hefur þó sést til Hannesar með majónesdollu, svo líklegt er talið að rekstur nýju kennitölunnar muni ganga vel.

RÚV
Jack-Daniels
Facebook






xB 2014






Fara efst á síðu