Allir tölvupóstar sem sendir eru í gegn um íslenska póstþjóna verða héðan í frá keyrðir í gegn um þennan klámtakmarkara.
Hann hreinsar út óæskileg orð, eða eins og Lögmundur sagði sjálfur: „Klámtakmarkarinn mun takmarka líkur á því að klámhundar nái takmarki sínu, sem er klám!“
Gys.is hefur undir höndum tölvuskeyti sem maður nokkur sendi syni sínum í morgun. Í skeytinu fer hann yfir það helsta sem drifið hefur á daga fjölskyldunnar, en sonurinn stundar nám erlendis.
Hér að neðan má sjá bréfið eftir að það lendir í klóm klámtakmarkarans, en enn neðar má sjá upphaflega útgáfu.
Ritskoðuð útgáfa
Sæll Her***t!
Ég sá hrafn vera að elta snjó********. Hann k******* og k******* og var greinilega mjög hun******.
F**** litla systir þín er byrjuð að æfa fimleika. Hún kemst næstum því í s****t.
Það eru æfingar *** sinnum í viku, sem mér finnst g****rlega mikið.
Hún er að safna pening til að komast á skóla****in í vetur. Hún á orðið einhvern slatta í *****nni sinni.
Það gengur illa hjá ****enham, þetta lið bara *****r sér ekki nóg af færum, það vantar einhvern n*****. Ég var nú eiginlega í ***** eftir síðasta leik.
Maður sér stjórann k****a leikplan á miða og s****** við fjórða dómarann allan leikinn. Hann er hálf ******umkennanlegur.
En þeir segja að hann sé k*****, og það þýðir svo sem ekkert að ***** sér.
Mamma þín er alltaf að st**** mér á þessu. Maður verður bara að kr***** fram bros og bíta á jaxlinn.
Það er þorrablót hjá með***** ****unarsinnahópsins sem mamma þín tilheyrir, þann ***tánda og ***um er auðvitað boðið. Það þýðir ekkert að t****a að mæta, þó maður þurfi kannski að ****ast í snjó til að komast.
Kær kveðja,
pabbi þinn.
Upphafleg útgáfa
Sæll Herbert!
Ég sá hrafn vera að elta snjótittling. Hann krúnkaði og krúnkaði og var greinilega mjög hungraður.
Fríða litla systir þín er byrjuð að æfa fimleika. Hún kemst næstum því í spíkat.
Það eru æfingar sex sinnum í viku, sem mér finnst gríðarlega mikið.
Hún er að safna pening til að komast á skólaböllin í vetur. Hún á orðið einhvern slatta í buddunni sinni.
Það gengur illa hjá Tottenham, þetta lið bara skapar sér ekki nóg af færum, það vantar einhvern neista. Ég var nú eiginlega í losti eftir síðasta leik.
Maður sér stjórann krassa leikplan á miða og spjalla við fjórða dómarann allan leikinn. Hann er hálf brjóstumkennanlegur.
En þeir segja að hann sé klókur, og það þýðir svo sem ekkert að barma sér.
Mamma þín er alltaf að stríða mér á þessu. Maður verður bara að kreista fram bros og bíta á jaxlinn.
Það er þorrablót hjá meðlimum sköpunarsinna sem mamma þín tilheyrir þann sextánda og mökum er auðvitað boðið. Það þýðir ekkert að trassa að mæta, þó maður þurfi kannski að klofast í snjó til að komast.
Kær kveðja,
pabbi þinn.