Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Fréttir Myndir Gullkorn Gyssurar Þjóðargersemi Sigm Und-ur Ýmislegt Könnunin Fréttabréf Samband
Loka valmynd

Ný hugsun er fædd!


Ný hugsun fæddist á Alþingi. Hefur ekki gerst áratugum saman.


Þær undirfurðulegu fréttir bárust frá Alþingi rétt í þessu að þar hefði fæðst glæný hugsun.

Ekki er ljóst í hvaða kolli hún kviknaði, en talið er að húsvörður Alþingis sé ábyrgur.


Í fyrstu var talið að um væri að ræða frumlega hugsun, en slíkar hugsanir teljast ógn við Alþingi. Þess vegna var undir eins hringt eftir lögreglu og mjög svo sérstökum saksóknara.

Betur fór þó en á horfðist, því samkvæmt talsmanni lögreglunnar snérist þessi nýja hugsun fyrst og fremst um að flýta fyrri kaffitíma Alþingis.

Ekki er ljóst hversu mikið.

Lögreglan hefur lofað því að fjölmiðlar fái að fylgjast með framvindu málsins ef fleiri nýjar hugsanir láta á sér kræla á Alþingi.








Eldhúsdagsdansinn






Fara efst á síðu