Fréttir
Myndir
Gullkorn Gyssurar
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Fréttir
Myndir
Smelltu
til að sjá valmynd
Fréttir
Myndir
Gullkorn Gyssurar
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Loka valmynd
Gyssur
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Segist bara jafn vanhæfur og venjulega
Kristján Þór Júlíusson, Samherjaráðherra, segist bæði finna fyrir trausti og vantrausti. Aðallega vantrausti en þó samt smá trausti. Kannski engu trausti, en allavega gríðarlega miklu vantrausti.
Fagnaðarfundir á skrifstofu RÚVvalds!
Gísli Marteinn hættir í stjórnmálum
Annað hvort að skipta um skoðun eða hætta
„Það vildi svo skemmtilega til, að Páll Magnússon hringdi í mig á nákvæmlega sömu stundu og ég áttaði mig á því að sjórnmálaferli mínum væri lokið!“, segir Gísli Marteinn, glaður í bragði.
„Ég sá fram að að þurfa að skipta um skoðun, og það er auðvitað dauðadómur yfir stjórnmálamönnum. Þannig að í staðinn fyrir að skipta um skoðun, ætla ég bara að skipta um starf!“
„Hann er besti sjónvarpsmaðurinn sem við áttum kost á til að sinna þáttagerð af þessu tagi.“, segir Páll Magnússon, RÚVvaldur Íslands.
En þarf ekki að auglýsa svona stöður Páll? Gísli Marteinn segir að þú hafir bara hringt í hann og boðið honum starfið...
„Ég er bara ekki viss. Ég held að þess þurfi ekki, ef maður ræður Sjálfstæðismann. Ég hefði eflaust þurft að fara með allt heila klabbið í gegn um svakalegt ráðningarferli ef ég hefði ætlað að ráða einhvern úr Vinstri grænum, ég tala nú ekki um Pírata!“
Þannig að þú ert bara að reyna að skora svokölluð stjórnarstig?
„Já, í rauninni sko...“
Hefði ekki verið heppilegra að ráða einhvern sem hefur kannski oggopínkuponsulítið hlutlausari bakgrunn?
„Það er auðvitað blæbrigðamunur, áferðarmunur, stigsmunur, eðlismunur, atkvæðamunur, merkingarmunur, gæfumunur, herslumunur, skoðanamunur, stærðarmunur, styrkleikamunur, þyngdarmunur, og jafnvel dagamunur sem ræður því. Að þessu sinni þótti mér best að ráða innmúraðan Sjálfstæðismann! Svo eru líka eilíf bílastæðavandamál hér, ég finn stundum ekki stæði fyrir fína jeppann minn. Og Gísli Marteinn hefur lofað að koma alltaf á hjóli!“
Svo greindu
DV
og
RÚV
frá.
Flokkar
Dagsannar fregnir
Hörmuleg tíðindi af Ragnari Róbertssyni
Sportlegar íþróttir
Pólitík og smá stjórnmál
Hámenning og fagurfræði
Samfélags- og fjölmiðlar
Ótrúleg trúmál
Hátæknileg vísindi og vandaðar kannanir
Fjölfréttir
Utan hlandssteinanna
Tweet
Til baka
Miskunnarlausi
Samherjinn
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Stórskemmtilegt ævintýri fyrir kapítalista á öllum aldri
Sexfaldir tvífarar
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Eða bara Páll Giuliani
Samtök
hatvinnulífsins
kynna sömu tillögur og venjulega
Samtök hatvinnulífsins gáfu nýlega út skýrslu sem nefnist „Menntun með þarfir fyrirtækja að leiðarljósi - Fólk má fokka sér.“
Í henni er að finna nokkrar framúrstefnulegar og verulega sæberpönkaðar tillögur, sem miða að því eins og titill skýrslunnar gefur til kynna, að koma enn og aftur á framfæri þeim sjónarmiðum samtakanna að fólk eigi ekki að mennta sig með sínar eigin langanir að leiðarljósi, heldur eigi það fyrst og fremst að hafa þarfir atvinnulífsins í huga.
Finnst skelfilegt að fyrirtæki axli
samfélagslega
ábyrgð
Wild-Boys bræðurnir Panama-Bjaddni og Simmi-Wintris hafa ekki verið sammála um margt undanfarin ár, annað en klassískan klæðaburð og næringargildi íslenskrar kjötsúpu. En það breyttist snögglega til hins betra nú í vikunni.
Svo hjartanlega sammála eru þeir að það má ekki á milli sjá hvor þeirra er meira sammála hinum.
En um hvað eru þeir svo sammála nú? Það þarf svo sem ekki að koma neinum á óvart...
Ísland loksins komið á gráa listann!
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Næst þurfum við að komast á þann svarta!
Ekkert óeðlilegt við endalausa spillingu
Már Guðmundsson, fyrrverandi Seðlabankaspillingur, segir ekkert óeðlilegt við gjörspillta og alltumlykjandi spillingu sína.
Hann segir að það sé alltaf spillt spillingarspilling alls staðar, hafi alltaf verið og verði alltaf. Sjálfur segist hann hafa mokað mikið upp úr spillingarflórnum í eigin vasa að hann hafi nánast örmagnast.
Raggi hressi mættur á Tinder
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Mikilvægt samstarf þó enginn skilji neitt í neinu
Guðjón S. Brjánsson, aðalformaður Norðausturhluta Íslandsdeildar Norðvestnorræna norðurogniðurráðsins, segir eðlilegt að hann og aðrir ráðsmenn ráðsins skilji ekki neitt í neinu sem fram fer á ráðsfundum ráðsins.
Gysið mun sigra
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Gleðilegan Júróvisíondag!
Úr dagbók lögreglu
Skömmu fyrir hálfátta í gærkvöld handtók lögreglan óvart mann sem var á gangi með hundinn sinn. Hann verður látinn dúsa í fangaklefa uns lögreglan getur skáldað upp ástæðu fyrir handtökunni.
Rétt fyrir átta var tilkynnt um hálfberan mann á hlaupum á Austurvelli. Kom í ljós að þar var á ferðinni Gunnar Bragi Sveinsson. Hann gistir fangageymslu þar til rennur af honum.
Siðanefnd Alþingis
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
kann fáa góða siði
Herrann í Hádegismóum...
Íslendingur í öðru sæti á
Ömurðarleikunum
Hinir daglegu Ömurðarleikar voru haldnir í gær sem aðra daga á Twitter. Keppnin er jafnan hörð, því að þó margt ömurlegt megi finna á Twitter þá þurfa þátttakendur í Ömurðarleikunum að uppfylla fjölda skilyrða til að eiga séns á sigri.
N1 -
Skítafyrirtæki
mánaðarins
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Sjá hér
Íhugar að hætta að bíða eftir nýju
stjórnarskránni
Sigríður Sóley Sigursteinsdóttir, eða Sigga-Sól eins og hún er jafnan kölluð, segist vera orðin svo þreytt á því að bíða eftir nýju stjórnarskránni að hún íhugi alvarlega að hætta því. Alfarið eða í það minnsta að hluta til.
Nú sé tímabært að snúa sér að einhverju öðru, eins og að bíða eftir fjórða orkupakkanum eða næsta sigri Stoke City.
MOM
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Berþór aftur orðinn formaður
Berþór Ólason, formaður Íslandsdeildar INCEL samtakanna, þingmaður Miðflokksins og einn allra færasti bjórþambari landsins, var í gær kjörinn formaður Umhverfissóðanefndar Alþingis við mikinn fögnuð sumra viðstaddra.
Dularfulli
dulbúningurinn
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Virkar svona ótrúlega vel
Reykjavík í náinni framtíð
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Suðræn og seiðandi
Vikan á Instagram: „Ógissla findið að sj'a svona
vaksmindakalla“
Vikan á Instagram er fastur liður á GYS.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga.
Dónakarlarnir
snúa aftur
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Þó eftirspurn sé engin
Vill fækka litum í
regnbogafánanum...
Guðmundur Oddsson segist hafa miklar áhyggjur af því hversu marga liti megi enn finna í regnbogafánanum (sem innihélt 8 liti í upphaflegri gerð). Hann segir erfitt að muna sex mismunandi litanöfn í réttri röð, hvað þá öfugri.
Að mati Guðmundar er lífsnauðsynlegt að fækka litum í fánanum mikið. Best væri að fækka þeim í einn eða engan, en í allra mesta lagi megi hann innihalda tvo mismunandi liti.
Snjómokstur bannaður
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Í vetrarríkinu norðan heiða
Kjöt eða grænmeti, það er spurningin
Líf Magneudóttir hefur fundið bráðsnjalla og ótrúlega einfalda lausn á loftslagvanda jarðar og hamfarahlýnun. Lausnin er margfalt einfaldari en nokkurn grunaði. Hún felst í því að skólabörn í Reykjavík hætti að borða kjöt, eða geri það allavega bara í frístundum.
Yfirlýsing Simma og félaga
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Safnar
undirskriftum
í frístundum
Jón Kári Jónsson, formaður, ritari og gjaldkeri „Sjálfstæðismannafélagsins í Mávahlíð 34“, hefur undanfarna mánuði einbeitt sér að því þarfa verkefni að safna undirskriftum á meðal sjálfstæðismanna gegn þriðja orkupakkanum.
Jón Kári vill alls ekki gefa neitt uppi um hversu mörgum undirskriftum hann hefur safnað, en segir þó að þær séu örugglega fleiri en þrjár en samt mögulega færri en fjórar.
Krísustjórnunarskóli
Simma
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Fréttir
Myndir
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Fara efst á síðu